Hilda a million dollar baby

19.04.2008 00:46:53 / sifu

ég er flutt

Jess....ég ætla að prufa blogspot kerfið....búin að stofna nýja síðu sem ég er að vinna í ....ætla að ath hvort mér líki betur þar....þetta drasl liggur of oft niðri svo i´m gonna give the other a try.....þið finnið mig á:
oh....ef ég skrifa linkinn þá kemur bara eitthvað fokk...svo ég skrifa hann bara í kommentakerfið....jú...annars get ég skrifað þetta líka svona skvisanhilda.blogspot.com

ok....sjáumst þar;)

Hilda


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 18:15:24 / sifu

Draumfarir

Ég er lítil norn....það hefur svo sem komið fram áður...nokkrir af mínum nánustu vita hvers megnug ég er....alls ekki allir sem þekkja mig því ég hef svo sem ekkert verið að flagga því neitt því sem ég bý yfir. En eitt af því er berdreymni...mig dreymir rosalega mikið....stundum bara eitthvað algjört bull og rugl og stundum fyrir hlutum....stundum eru draumfarir mínar einkenndar af undirmeðvitund atburða sem hafa átt sér stað deginum áður...fólk sem ég hef verið að hugsa um eða verið að umgangast kemur þá líka inn í.....stundum fæ ég skilaboð í draumi...þau eru stundum frá fólki sem er farið.

Í nótt dreymdi mig ótrúlega skrítið....dreymdi eiginlega allt af þessu ofantöldu...t.d. var svaka mikið rugl og bull í drauminum....bílskúrinn heima en samt ekki heima heldur hjá tengdó saman við bílskúrinn hjá nágranna þeirra.....inn í þessum bílskúr var risastór rauður og gulur bíll.....litir merkja ákveðið í draumum....inn í þessum bíl var strákur sem ég þekki ekki en mér finnst samt eins og ég eigi að kannast við hann einhversstaðar frá....hann var að fikta í bílnum....setti af stað einhverjar sírenur og ljós....það mátti einhverja hluta vegna ekki svo ég fór inn í bílinn, í aftursætið og er eitthvað að skamma hann...bið hann svo um að segja mér hvað hann hafi verið að gera...hann segist þá hafa ýtt á takka, þennan takka og við það þýtur bílinn af stað...í gegnum bílskúrshurðina og eitthvað drasl þar fyrir utan...pappakassa og heybagga....framundan var svo nánast beinn malbikaður vegur sem við þutum eftir á ógnarhraða....talan 300 kom upp....ég hef aldrei farið svona hratt í bíl...þetta var alveg ógeðslega hratt...ég næ svo að teygja mig í takkann og ýta á hann, við það hægir bíllinn á sér og stoppar svo alveg. Við þetta brutust út þvílík fagnaðarlæti og var mér tekið sem einhverskonar hetju....þegar ég kem aftur í bílskúrinn er hann fullur af fólki....fólki sem ég þekki mis mikið og líkar bæði vel og illa við....eða þarna var ein manneskja sem er ekki vinur minn....eníveis....ég var svo sem ekkert að pæla neitt í henni...bara heilsa fullt af fólki....þarna var Elísa Rún æskuvinkona mín t.d. og líka strákur sem vinnur á deildinni hennar Júlíu...hann þurfti að faðma mig rosa mikið og ég man ég hugsaði ,,vá hvað hann er mjór” hehe....MEN....jæja...ég stend svo þarna eitthvað að fylgjast með öllu....Sálin átti að fara að byrja að spila....þá tek ég eftir því að það er einhver að fylgjast með mér...horfa á mig....og ég fer að líta í kringum mig og sé þá elsku hjartans Önnu Maríu mína heitna sitja hinum megin í skúrnum upp á palliettum....hún brosir til mín og mig langar svo að komast til hennar en ég vissi einhvernveginn að ég gat það ekki....svo ég segi með vörunum ,,komdu” og bendi henni með hendinni á að koma....en hún bara sat þarna með bros á vör...var með rauða hárið sitt og í gallajakka...með stuttan þvertopp og axlarsítt hár....dinglandi löppunum niður af palliettunum......svo vaknaði ég.

Ég er auðvitað löngu búin að ráða drauminn....vissi alveg hvað hann þýddi þegar ég vaknaði....en ég ætla ekki að segja frá því hér.....af ákveðnum ástæðum.

Mikið rosalega var ég samt glöð í morgun eftir drauminn....sérstaklega að hafa séð Önnu mína....

Annars er ég bara á fullu í heimaprófi...byrjuð á fyrri spurningunni og gengur vel held ég bara....ætla mér að klára hana í kvöld og gera svo síðari spurninguna á morgun....fara svo yfir þær á föstudaginn og helst að skila þeim þá....ritgerðin er þá núna í smá pásu...fer í hana um helgina ef allt gengur samkvæmt áætlun. En ég ætla helst líka að reyna að fara í smá göngutúra...ekki gleyma sjálfri mér í stressi og álagi....og auðvitað ekki heldur fjölskyldunni....svo er Hanna Björg vinkona að bjóða mér í ljós með sér á föstudaginn í hádeginu....ætlum svo að borða saman og kíkja í Kringluna....ætla að kaupa mér svartar gallabuxur;)

Annar er svo margt sem mig langar til að blogga um....eiginlega of mikið....reyni að koma því að í næstu bloggum....en núna ætla ég að hætta og fara að brasa hér heima við....elda og allt það...okey....bæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 22:20:48 / sifu

Mín skoðun

Jæja...ætli það sé ekki komið að útlendingapistlinum mínum....

Til að byrja með ætla ég að árétta það að ég er ekki rasisti...bara svo það sé á hreinu.

Var að horfa á Kastljósið áðan...umræðan þar snérist að miklu leiti um útlendinga hér á landi...Rætt var við pólverja sem er grunaður um aðild að einhverju hrottafengnu morði í heimalandi sínu....ok...saklaus uns sekt er sönnuð...það er bara þannig....ætla ekkert að gerast neinn dómari hér um það hvernig maðurinn kom mér fyrir sjónir og þar af leiðandi hvað ég held...en allir eiga rétt á að njóta vafans og eins og ég segi það eru ekki öll kurl komin til grafar. Eníveis...svo heyrir maður um það að pólverjar hér á landi eigi margir hverjir í innbyrðis deilum....það eiga íslendingar líka....það er alls staðar...

Nýjustu fregnir herma að útlendingarstofnun megi ekki krefjast sakavottorðs af þeim EES umsækjendum um dvalarleyfi hér á landi.....afhverju má það ekki? Menn hér á landi eru krafðir um sakavottorð all the time....þegar þú sækir um skotvopnaleyfi t.d. og þegar þú sækir um Lögregluskólann....þarft að vera með hreint sakavottorð við hin og þessi tilefni....Rökin fyrir því að útlendingastofnun gæti ekki farið fram á þetta væri að hún ætti ekki að hafa aðgang að gögnum þeirra sem fara með lög og reglu....eitthvað bla bla...

Viljum við sér sérstök þjóð á lítilli eyju ekki getað stjórnað því svolítið hverjir komast inn í landið og fá dvalarleyfi hér?

Sem dregur mig að næsta vandamáli....en það er það hve mikið fjárans bull það er að hafa landið opið....það geta bara allir komið hingað....viljum við það? Mér finnst þetta hneisa....Við eigum að mínu mati að reyna að halda í okkar séreinkenni og sérstöðu....það er líka ekki endalaust pláss...svo eru vandamálin að hrannast upp núna (hafa reyndar alveg verið næg fyrir) og það er bara þannig að við verðum að rækta garðana okkar áður en við förum að hjálpa til við að rækta garða annarra....þ.e.a.s. að hjálpa íslendingum áður en við hjálpum útlendingum.

Það er orðið þannig að hvert sem maður fer hér á landi....það er krökkt af útlendingum....hér í kringum mig eru útlendingar að vinna allsstaðar...það eru eiginlega bara útlendingar að vinna í Bónus þar sem ég versla oftast....líka í Krónunni....á leikskólanum hennar Júlíu...þeir eru gangaverðir í skólum....á spítalanum í Fossvogi sé ég eiginlega bara útlendinga að vinna...í bítibúrinu, að þrífa o.fl. Ef ég labba niðrí bæ þá heyri ég nánast bara útlensku....Ég man ekki hver talan er núna en síðast þegar ég heyrði þá voru um 15.000 þúsund pólverjar hér á landi...Auðvitað kemur margt af þessu fólki hingað og kannski nær eingöngu til að vinna og reyna að skapa sér gott lífi sem það fær ekki tækifæri til í heimalandi sínu....og þar sem við íslendingar erum orðin svo yfirmáta forhert í að vera EKKI nægjusöm viljum við ekki þessi láglauna störf....hvað þarf því að gera? Jú auðvitað að hækka lægstu launin...það er búið að reyna að berjast fyrir því í mörg ár...en launin hjá ríka fólkinu hækka bara og hækka....þróun sem er langt frá því að vera sanngjörn. Það er nefninlega ekkert leiðinlegt að vinna í fiski...eða mér finnst það ekki...vinnutíminn er líka góður...búin snemma....en launin eru náttúrulega bara ekki góð...en afhverju eru þau þá nógu góð fyrir útlendingana? Hvernig komast þeir af með að lifa fyrir þessi lúsarlaun? Kannski vegna þess að það hefur lifað við fátækt og hefur tamið sér þessa nægjusemi sem ég nefndi hér áðan....það er eitthvað sem okkur íslendingana skortir....hún var til staðar áður fyrr...t.d. í gamla sveitasamfélaginu á 19 öld.....en hún er svo langt frá því að vera til staðar í dag. Við viljum alltaf meira og meira....lifum gjörsamlega um efni fram....og svo hækkar bensínið...maturinn og allt....

Hvernig í ósköpunum á ung manneskja sem vill kaupa sér íbúð og stofna fjölskyldu að geta það í dag? ‘uff....ég veit það ekkii.....

Ég vona að þið sjáið að ég er að reyna að setja þetta allt í samhengi....enda held ég að þetta haldist allt í hendur...öll þessi hækkun á öllu og vandamál....og þá aftur útlendingar.

Mér finnst það t.d. ekki vera lausn að fá bara útlendinga til að vinna vinnuna sem íslendingar kæra sig ekki um að vinna....þetta er röng þróun....og komast þar af leiðandi hjá því að hækka launin....í stað þess að leysa vandamál þá bjóðum við öðrum vandamálum að koma inn líka.

Heyrði í útvarpinu um daginn frá umferðarráði að í 70% tilfella væru það útlendingar sem væru teknir fyrir umferðalagabrot hér.....hummmm.....ok eða hvað?

Pólverjar sem hafa búið hér um áraraðir tala um að þeir pólverjar sem eru að koma hingað til lands núna séu ,,ruslið”....Auðvitað eru fleiri útlendingar en bara pólverjar...þeir eru bara áberandi fleiri hér og meira í umræðunni....

Æi ég datt aðeins úr gírnum....var að horfa á Lost;) og nú eru fréttir.....hu...þar er verið að segja að margir mánuðir geti liðið þangað til framsal pólverjans gengur í gegn....allt svo flókið....jæja...þetta er svona....já og hvernig var þetta með útlendinginn sem keyrði á litla strákinn í Keflavík? Hann er flúinn! Æi það þarf eitthvað að gera...ég vil auðvitað leyfa útlendingum að búa hér og allt það....þetta er bara orðið of mikið og alltof mörg vandamál sem þeim fylgja....þeir eru farnir að tala um að glæpastarfsemi sé farin að teygja anga sína hingað.....nei við verðum að stoppa þetta! Það er nefninlega þannig að stundum er raunveruleikinn á undan löggjöfinni....það hefur eiginlega verið þannig frá því ja...að minnsta kosti síðan á 17 öld...ég veit ekki lengur en það....

Svo er eitt að lokum....ég segi að við verðum að gera kröfu um það að þeir útlendingar sem koma hingað til að búa verði að læra íslensku....það er ekki hægt að sætta sig við það...eins og ég lenti í um daginn þegar ég hringdi á landspítalann ...þá svaraði útlensk kona í símann...hún kunni ekki íslensku og fór því að tala við mig á ensku...ég tek það fram að þetta var frekar seint um kvöld svo ólíklegt verður að teljast að skúringakonan hafi svarað....en mér finnst það nú algjört lágmark að í þessum geira tali menn íslensku...svo er líka athyglisvert að sjá afgreiðslufólk í Bónus t.d....sem eru undantekningalaust útlendingar...að það talar bara ensku eða bara talar ekki neitt heldur bara bendir...bendir á verðið eða pokana....varð vitni að því um daginn þegar 2 litlir strákar voru að versla og þurftu að spurja afgreiðslustúlkuna um eitthvað....og hún bara svaraði ,,english”.....þeir náttúrulega voru í mestu vandræðum strákarnir......æi....

Ég meina...hversu langt mun þetta ganga? Ég spyr....ég held að fólk hugsi stundum ekki lengra en nef þeirra nær....og áður en við vitum af verður þetta vandamál orðið að svo stóru vandamáli að það mun reynast erfitt að laga það.....Við höfum dæmi frá nágranna þjóðum okkar en við skulum ekki læra af þeim....Þetta á við svo margt annað í þjóðfélaginu....eins og t.d. með álverin....skammtímalausnir sem skilja eftir sig svoooo stór vandamál og eyðileggja landið okkar....hvernig væri að við færum nú að takast á við vandamálin okkar þannig að þau lagist for good og haldist þannig...ekki bara redda með hinu og þessu sem endist í takmarkaðan tíma.

Jæja...má ekki vera að þessu lengur....er að fara að fá Þuríði litlu mína í heimsókn...mér skylds að hún komi færandi hendi með gjöf frá móður sinni....þakklætisvott fyrir hjálpina í afmælinu;) það er nú fallega gert....svo bara reyna að skrifa í ritgerðinni...búin með 3 bls...gengur hægt...en örugglega...eða eitthvað þannig....Fékk svo heimaprófið mitt sent áðan...2 spurningar....fer í þær í vikunni.....allt á fullu....og ég hálf lasin...engin tími fyrir það svo verkjatöflurnar hrúgast niður í mig...ohh tek helst ekki verkjalyf en ....þegar maður er bissí þá slengir maður þessu í sig svona rétt til að halda haus....well....langt....endilega segið mér ykkar skoðun á þessum pistli hjá mér....alltaf gaman að fá að heyra skoðanir annarra...gætu komið einhver önnur sjónarmið sem er manni bara hollt að heyra....alright...bæ ...Hi


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.04.2008 22:05:51 / sifu

Rautt og blátt

Jám....smá blogg...engin tími en jú...smá bloggJ

Fæturnir mínir eru u.þ.b. að jafna sig núna eftir svaka álag í gær....fór sem sagt að þjóna í 50tugs afmæli Maríu móður Þuríðar vinkonu minnar í gær kl.1600...stóð upp á annan endan til kl 2200 og var þá vægast sagt orðin dauð í fótunum....Rosa skemmtilegt afmæli og sérstaklega gaman að sjá brosið á afmælisbarninu....ánægja og gleði sem skein af henni...glæsileg kona sem svo sannarlega á marga og góða vini....

Okkur Stefáni var svo boðið í afmælispartý til Sverris trommara síðar um kvöldið....við vorum búin að fá næturgistingu fyrir stelpurnar svo það var ágætis....ég kom því beint heim úr afmælinu...Stefán var þegar farinn þangað svo ég var hér ein heima í góðu yfirlæti...setti The Doors á fóninn og smá gin í glas;) dundaði mér svo við að mála mig og græja....langaði reyndar ekki að fara í neina skó því fæturnir mínir voru ekki í stuði fyrir það en maður verður víst að vera í skóm þegar maður fer út á djammið....annars hefði farið enn verr fyrir fótunum....jæja eníveis...ég tölti svo út í leigubíl og mætti í vel hressandi afmæli....tók nokkrar singstar keppnir við hina og þessa.....við Stefán tókum líka nokkrar og var það eiginlega fyndið hvað við vorum alltaf jöfn á stigum....jess....svo var bara að skella meiri rauðum varalit á sig áður en við færum í bæinn....svo ég fór á baðið...þar var tónlist í græjunum...risa stórt bað með fullt af speglum....svo ég var bara í góðum gír að sjæna mig....fer svo niður og sé að allir eru farnir út...blikkandi blá ljós og bara verið að handtaka einn gaur fyrir utan húsið....hann var víst vel þekktur hjá löggunni og var með fíkniefni á sér.....jájá...þetta var frændi stráks sem vinnur með Sverri og Stefáni og hann hafði kíkt í partíið.....þegar ég sá hann koma í partýið þá fékk ég einhvern svona illan bifur....það reyndist rétt hjá mér....

Jess...ok svo röltum við niður í bæ....afmælisliðið fór á Nasa á Sálina en við Stefán kíktum í Leiklistarskólapartý....þar hittum við skemmtilegt fólk...Bjart og svo þá félaga Halla og Rikka....röltum svo með þeim 2 síðarnefndu á Kofann....þar sem Þuríður og fleiri gellur biðu okkar...dönsuðum aðeins þar þangað til ég settist niður í 100 skiptið og gat ekki meira...ég var að kálast...Stefán var líka að drepast í mjöðminni svo það var ansi skrautlegt par sem staulaðist heim á leið.....jáp rétt náðum niður að leigubílaröðinni....hélt ég mundi ekki hafa það af að standa þar en við hittum Mugison og konuna hans sem við spjölluðum við....og þar sem það voru svo hressandi og skemmtilegar samræður þá gleymdist peinið í fótunum um stund.....en aldrei hef ég verið eins fegin að fara úr skónum eins og þegar heim kom.....jesú minn.

Við fórum svo að tala um stelpurnar okkar áður en við fórum að sofa....skrítið....það gerist ekki oft að maður fái tækifæri til að sofa út og vera bara við 2 hjónin heima...en samt saknar maður þeirra strax....mig langaði eitthvað svo að hafa þær....fá 2 fallegar stelpur inn til sín á morgnanna....hlægjandi og skríkjandi að kúra í mömmu og pabbaholu....yndislegt!

Jæja...dagurinn í dag líka búinn að vera fínn....skúra og læra....elda góðann mat....Stefán gerði salatið....drengurinn gerir bestu salöt í heimi! Buðum Jónasi frá Helluvaði í mat....hann kíkti svo á tölvuna fyrir okkur og hreinsaði eitthvað dæmi....don´t ask me....

Nú er það bara Boston ...halda áfram að skrifa ritgerðina...gengur hægt...búin með eina og hálfa bls....úff....10 og hálf eftir...MEN....jæja...

En að lokum langar mig til að sýna ykkur sms sem ég fékk frá Stefáni í síðustu viku...hehe...það er svona:Ken lee Alibudibuatchu. HAHAHA.....þetta þýðir sem sagt i can´t live if living is without you.......æðisleg ástarjátning;) annars kemur þessi setning frá atriði sem við sáum á youtube....þar er einhver kona að reyna að syngja þetta lag á ensku....þetta er mjög fyndið atriði.

Okey....þetta átti að vera stutt...og stutt skal það vera....ég er að flýta mér...svo...þangað til næst....fáið ykkur súkkulaði köku....Hilda


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 13:13:49 / sifu

Píanó

 

Ég er ekki að standa mig...ekki byrjuð að skrifa ritgerðina...bara búin að gera beinagrind en jú það er þó byrjunin...alltaf að byrja á beinagrind...það lærir maður í háskóla...eníveis...er eitthvað að reyna að koma mér í gírinn að byrja...gengur illa....fallegt veður úti og mig langar að hlaupa....samt er ég svöng og það er einhvernveginn ekkert til hér á heimilinu....þarf að versla....

Ég sé það að enginn þorði að kommenta á bloggið hér fyrir neðan...þorði eða nennti? Kannski OF persónulegt....ég veit ekki....miðað við það að yfir 100 heimsóknir eru á síðuna mína þá finnst mér þetta lélegt....mér finnst alveg að fólk sem les það sem ég skrifa geti sett inn smá kveðju....er það til of mikils ætlast? Æi nú er ég bara frek...eða hvað?

Annars langar mig til að segja.....Ég lærði á píanó í 8 ár....þangað til að ég varð 15 ára og nennti þessu þá ekki lengur....það er talað um að ef þú lærir í 10 ár þá sértu orðin góður píanóleikari og gleymir þessu aldrei....eins og að hjóla...nema þú þarft ekki að hjóla í 10 árJ hehe....Já...allavegna...þeir voru nokkrir píanókennararnir mínir....man ekki hvað allir heita en ég man eftir Helga Pé og Úlrik Ólafs.....en sá síðarnefndi lést núna um daginn...mamma sagði mér frá því....mér fannst það mjög leiðinlegt að heyra...þó svo að ég hafi ekki þekkt manninn neitt persónulega þá kenndi hann mér í mörg ár og annar sonur hans var bekkjarfélagi minn í þann tíma meðan fjölskyldan bjó á Húsavík....Úlrik var fínn kennari....blessuð sé minning hans. Svo kenndi afi Fikki mér síðustu árin sem ég lærði....það voru bestu tímarnir...ég mætti alltaf í ömmu og afa hús (Hliðskjálf) kl 13...þá var amma vanalegast að vaska upp eftir matinn en afi sat inn í stofu og hlustaði á útvarpið og lagði kapal.....tíminn byrjaði ekki alltaf strax heldur sátum við afi og spjölluðum...hann sagði mér alltaf einhverjar sögur...mjög merkilegar og fræðandi sögur um merkis atburði úr íslandssögunni....eða heimssögunni....stundum gaf hann mér eina og eina bók í kjölfar sagnanna.....svo byrjaði tíminn....Ég man að mér fannst gott og gaman að læra hjá afa....og þess vegna skil ég ekki afhverju ég hætti...kannski var ég bara orðin of mikil skvísa og mikið að gera líka í íþróttunum....veit ekki.....en ég veit bara að afi varð fyrir vonbrigðum að ég skyldi hætta....hann talaði aldrei um það við mig enda hefði ég þá ábyggilega byrjað aftur....ég vil helst ekki valda fólki vonbrigðum...en hann sagði mömmu það....ég er líka eina barnabarnið hans sem hafði lært svona lengi á píanóið.....og einhvernveginn held ég að afi hafi haft væntingar og vonir um það að ég tæki við af honum....eða þúst þannig....það væri allavegna einhver sem spilaði á píanó....ekki það að mamma spilar og Siddi bróðir hennar....Emelía Dögg systurdóttir mín og Aldís frænka og síðast heyrði ég að Eggert frændi væri farin að læra....en allir hafa hætt að læra....það er málið.....Ég hef mikið hugsað um það á undanförnum árum hvort ég ætti að byrja aftur að læra....ég á jú píanó...rosalega fallegt gamalt píanó sem kemur til með að vera í stofunni minn þegar ég eignast hús.....Ég man að stuttu eftir að Emelíana fæddist þá fór ég í tónlistarskólann og fór í nokkra tíma....en það var einhver útlensk kona að kenna mér og hún var ekki að skilja neitt....ég fílaði ekki tímana svo ég hætti....ég les nótur og get vel spilað það er ekki málið....ég þarf bara þjálfun og að koma mér af stað aftur....ég er því búin að taka ákvörðun að fara að læra aftur þegar mínu námi hér í Rvk er lokið og ég komin með píanóið mitt heim. Kannski byrja ég að semja lög aftur á píanóið....það væri gaman...þá verðum við Stefán svona tónlistarpar sem er geðveikt mikið að semja og vinna tónlist saman.....rómó;) hehe.....jájá...sjáumt til...ég ætla allavegna ekki að tapa þessu niður....

Jæja...sáuð þið nokkuð Júlíu mína í Kastljósinu í gær? Ekki sko Júlíu Brá mína...ég á nefninlega aðra Júlíu....vinkonu Júlíu...ahh...sá hana óvænt í sjónvarpinu í gær og það var svo gaman....ég settist á stofuborðið og brosti.....fallegan mín...með rauða hárið í snjónum....mér þykir svo vænt um hana!

Talandi um Júlíur....litla Júlía Brá mín hefur fengið nýtt áhugamál....jebbs....það er að kúka í baðið!!! Og hún gerir það meðvitað...hahaha....MEN....vitandi það samt að það má ekki kúka í baðið...gerir hún það samt.....svo skilur hún ekkert í því hvar amma er....en tengdó fór í gær eftir að hafa verið hjá okkur í 2 vikur....Júlían leitar að henni....,,amma sofandi”....,,amma búðinni”....,,amma fara bílinn”   mesta snilldin finnst mér samt vera að þessi amma er með facebook síðu....og gerir aðrar ömmur betur...hehe....komst að því þegar hún var hér hjá okkur...addaði henni aðsjálfsögðu sem vini hjá mér og í kjölfarið flyktust inn vinabeiðnir til hennar.....kellan mín sem var bara að fikra sig áfram við þetta auðvitað yfir sig glöð með allt þetta....annars held ég að hún sé að ná tökum á þessu sko...;) ah well.....allt gott og blessað....nema helv..bólurnar sem ég er með....ættuð að sjá á mér andlitið og hálsinn....þetta eru stress/álagsbólurnar.....milljón á hökunni og hálsinum á mér....MEN....ég vil ekkert fá svona bólur....ég er orðin alltof gömul til þess....er eins og eitthvað viðrini....jæja...þá er bara að púðra yfir þær...;)

Jess....svo kemur Þuríður mín á morgun....jeyjjj...gaman....ég ætla að vera aðstoðarstúlka í afmæli móður hennar...ásamt Evu....og svo skvettum við úr klaufunum;) Svo er okkur hjónunum boðið í afmæli um kvöldið líka...svo það stendur margt til boða...m.a. að fara með sverri afmælisbarni á Nasa á Sálina....eða á ball með Bjarti og leiklistarnemum....eða bara hvað sem er...niðrí bæ og dansa eins og mongó á Kofanum....þetta verður skemmtilegtJ

Æi....ég á ekkert að vera að eyða tíma í þetta blogg núna...borða og svo ritgerð....hana nú....ok...love bæ Hi


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 15:16:50 / sifu

Freud, Skinner eða Hilduhaus?

 

Undanfarna daga hef ég verið í smá sjálfs sálkönnunarleiðangri....það hefur gert mér gott. Ég býst við að flestir fari í svona ,,köfun” einhvern tímann....við könnum kosti okkar og galla...spáum í hvað við höfum gert gott og hvað slæmt....hvað aðrir hafa gert fyrir okkur eða gert okkur...gott og slæmt....spurjum sjálf okkur hvaða áhrif fortíðin hefur á okkar tilveru og sálarástand í dag....ekki satt?

Ég hef aðeins verið í spekúlera í þessu undanfarna daga...af ákveðinni ástæðu sem ég ætla ekkert sérstaklega að nefna...þetta er jú frekar persónulegt en hey...ég hef nú svo sem verið frekar opin með flest mín mál og persónulegar skoðanir....eníveis...

Ég hef sjálf fest svolítið í því að blanda öðru fólki inn í mín ,,vandamál”....og veit að það er ekkert alltaf rosalega sniðugt....þannig sko að þessi ,,mál” eru hálf óuppgerð mál úr fortíð minni sem ég yfirfæri á nútímann...eða líðandi stund....ég held stundum að fólk sem er í kringum mig núna en þekkir ekki fortíð mína nægilega vel eða þær manneskjur sem ég umgekkst þá geti hreinlega ekki haft nægilega mikinn skilning á málinu til að hjálpa mér við að ,,díla” við það....og satt best að segja þá er mjög ósanngjarnt af mér að blanda því inn í það eða að ætlast til þess að það geti á einhvern hátt skilið mig og ,,málefnið”.....æi fokk...er ég að gera sjálfa mig nógu skiljanlega? Hausinn minn er eins og völundarhús núna...svo erfitt að útskýra þegar leiðirnar að markmiðinu eru margar....allavegna....ég hef sem sagt komist að því með sjálfa mig að ég hef verið að heimfæra gömul mál yfir á það líf sem ég lifi í dag....jú við mörkumst af því sem við höfum gert og séð og allt það....fylgir okkur alla ævi en sumt er best geymt í kössum einhvers staðar...það sem ekki er hægt að klára eðli málsins samkvæmt...svona sár sem eru kannski gróinn en skilja eftir sig stór ör....það eru þessi ör sem ég er að tala um að þurfi að hylja...þessi ör sem sjást kannski ekki alltaf nema að þú leyfir fólki (líklegast þínum nánustu) að sjá þau...segir kannski sögu þess .....

Það sem ég er að reyna að segja er að ég hef leyft fólki að snerta á mínum örum....þau eru sem betur fer ekki mörg en sum þeirra eru mjög djúp....þetta hef ég verið að hugsa um og held ég sé komin að þeirri niðurstöðu að ég hafi kannski gert mistök með því....mér finnst ég bara alltaf þurfa að útskýra sjálfa mig svo vel og þá kemur fortíðin oftar en ekki inn í .....Ég þarf ekki að sýna mig alla...þó ég sé ekki spéhrædd þá held ég að ég verði að fara aðeins að ,,kötta” á þetta....því það að vera svona opin getur skapað vandræði og leitt til ýmiskonar misskilnings meðal fólks.

Ég hef dottið niður í sjálfsvorkun....og ekki gert mér grein fyrir að það er sjálfri mér að kenna....ekki öðrum....en það er stundum erfitt að sjá það...betra að kenna öðrum um....en hvað er öðrum að kenna? Jú margt af því sem hefur skilið eftir ör hjá mér er öðrum að kenna...ég bað ekki um það....en svo er líka annað sem fólk gerir og þá reynir á hvernig ég bregst við því og ,,tækla” málið...það er þá bara eitthvað sem aðrir gera en reynir á mann sjálfan að láta það ekki hafa þannig áhrif á sig að maður detti í sjálfsvorkun og þar af leiðandi að segja: þetta er þér að kenna!

Ég hef ákveðið að breyta til hjá mér.....í hausnum mínum....hann er alltof flæktur stundum í svona rugl-hugsanir um fólk....og sjálfa mig líka....ég breyti ekki öðrum ...ég get bara breytt mér! Kannski þannig að það hafi jákvæð áhrif á hegðun annarra...vonandi...en fyrst og fremst fyrir MIG....ég hef látið sjálfa mig sitja alltof lengi á hakanum og nú ætla ég að breyta því....;)

Ég tel mig vera góða og gefandi manneskju....og það ætla ég mér áfram að vera....ég ætla bara að verða enn betri!  Það eru þó sérstaklega 2 mál sem ,,bögga” mig....æi samt mál sem ég er ekkert að hugsa um dags daglega...bara svona þegar maður dettur í þennan gír eins og ég er í núna....sálarskönnun eða hvað á að kalla það....já þessi mál eru þannig að kannski væri best að klára þau með því að fyrirgefa og ræða út um þau og reyna að gera allt gott og allt það....en málið er að það hefur verið reynt....ég hef fyrirgefið og gefið slaka og allt...reynt að brosa og taka tillit til alls....en vitiði...það er bara ekki hægt...því þarna koma að máli manneskjur sem hreinlega ....ég vil ekki nota ljót orð....já manneskjur sem eru að mínu mati bara illainnrættar og eigingjarnar. Sama hvað ég hef reynt að fegra þær í huganum...hugsa að allir séu nú góðir inn við beinið og allt það...þá hef ég bara gefist upp á því....ég get ekki talið mér trú um það lengur....þannig að ég hef lokað....lokað á allt í sambandi við þær....og þannig ætla ég mér að hafa það.....EN   já það er alltaf enJ kannski ...veikt kannski...í framtíðinni getum við mætt hver öðru og endanlega lagt leiðindi til hliðar...það er alltaf von....en þangað til eru þessi 2 mál geymd í kassa langt í burtu frá mér....og þeir verða ekki opnaðir nema að ég viti að að baki liggi 100% hreinn vilji....þá er ég tilbúin að koma til móts við hann...viljann.

Fjúff....þetta var nú gott....,,stíma” aðeins út....nauðsynlegt.....en já...bara svona í lokinn....um þetta útlendingatal...ég skal blogga um það soon....verð að fara að paufast við að smíða eitt stykki 12 bls. ritgerð....svo þangað til næst....ást og friður...Hilda


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 17:50:02 / sifu

Yndislegur dagur....yndislegt veður;)

Já í Reykjavík er yndislegt veður....held hreinlega að ég geti sagt að það sé komið vor...ég allavegna get skundað út á bol og í léttri peysu...frábært! man líka þegar ég var í húsmæðraskólanum (fyrir lööööönngu síðan) þá fórum við stelpurnar út á svalir í Apríl í sólbað....það var nú gamanJ

Ég fór út á svalirnar hjá mér áðan og setti upp snúrur...nú fer ég að hengja út þvottinn...það verður nú lúxus...elska hreinan þvott sem hefur útilykt í, rúmföt og svona....þið þekkið þettaJ

Lundin verður eitthvað svo einstaklega létt á svona dögum....svona góðviðris sólardögum...mér finnst ekki vera neitt sem ég ekki get þegar það er svona bjart og allt yndislegt!!!

Annars var ég að hugsa um þessi mótmæli vörubílstjóra áðan þegar ég var að keyra eftir Miklubrautinni....ummæli forsetisráðherra í gær voru náttúrulega til háborinnar skammar...segja að þeir komi ekkert til móts við þá sem eru að mótmæla meðan þeir halda mótmælunum áfram....GLATAÐ....hvað er að? Barnalegt finnst mér. Það hefur nefninlega lengi loðað við þjóðina að hún virðist ekki geta verið samtaka um neitt....og svo gleyma menn bara öllu og láta allt yfir sig ganga. Það sem þessir menn sem eru að mótmæla eru að gera kallast að vera activisti....sem þýðir einfaldlega að þeir bregðast við hlutunum og gera eitthvað til að reyna að sporna við þeirri þróun sem á sér stað hér í samfélagi okkar. Ég veit að það eru ekki allir sem hafa tök á að vera activistar en það þýðir þó ekki að maður geti ekki og megi ekki hafa skoðun á málefnum líðandi stunda....ég t.d. er með ákveðið mál í gangi sem ég vona að ég geti farið í af fullum krafti þegar prófunum mínum er lokið....ég ætla að vera activisti í ákveðnu máli sem skiptir mig gríðar miklu máli....og það var einmitt eitt af því sem ég var að hugsa um meðan ég var að keyra...ég vil reyna það sem ég get til að sporna við ákveðnum þáttum sem ég tel að geti hreinlega leitt land okkar....þetta hreina og fallega land okkar...til glötunar...ef ekkert er að gert þá verður það klárlega þannig....menn hugsa nefninlega stundum ekki lengra en nef þeirra nær og þar liggur vandinn...skjótur gróðaávinningur og ekkert meir en það...sem skilur hvað eftir? Jú stór vandamál og ör á landinu okkar!

Í því námi sem ég er í er oftar en ekki rýnt í fortíð þjóðarinnar og landsins....þetta ættu ráðamenn þjóðarinnar stundum að skoða...þeir yrðu hissa....Hafið þið ekki stundum heyrt ömmur ykkar og afa segja: í gamla dag var þetta svona.... og þau tala eins og allt hafi verið betra og auðveldara. Það er svo margt til í þessu....og ég held að fólk ætti að líta tilbaka og tileinka sér í meira mæli nægjusemi sem einkennir gamla sveitasamfélagið!

Jæja...allavegna...þá held ég að lífsgæðakapphlaupið steypi okkur í glötun...upp að vissu marki mun það gera það...við verðum að passa eyjuna okkar...við erum svo einstaklega heppin að vissu marki...að hafa þá sérstöðu sem við hingað til höfum haft....önnur lönd öfunda okkur og sum þeirra hafa líka reynt að benda okkur á að gera ekki sömu mistök og þau eru núna sjálf að reyna að leiðrétta og laga....NEI við erum nú svo mikið að sleikja rassgatið á einhverjum köllum út í heimi sem hafa bara eitt að leiðarljósi...að græða á okkar orku og landi...skítt með hvaða áhrif það skilur eftir sig í framtíðinni....ohhh ég get orðið svo brjáluð að hugsa um þetta....heimska og ekkert nema heimska! Og hvað er það að vilja flytja inn kýr frá Noregi? Bara til að auka mjólkina....við eigum að halda því sem hreinræktað er...eins og hestana okkar sem eru í sérflokki og sauðféið....MEN...jæja...ég skal hætta...gæti haldið áfram endalaust! Á ég kannski að byrja á útlendingunum? Gæti það alveg....nei nei...ég skal fara yfir í eitthvað annað...;) Við fórum í sund í gærkvöldi...ég og Stefán með okkar stelpur og 2 nágranna krakkana sem Emelíana er alltaf að leika við....svo gott og gaman að fara í sund eftir kvöldmatinn...þar fór ég einmitt að hugsa um hvað Emelíana er orðin stór...fullorðin...jesú minn ekki langt í að hún verði unglingur...jæja nokkur ár í það enn...en samt komin svolítil gelgja í hana;) tíminn líður svo hratt....mikið vatn runnið til sjávar síðan ég eignaðist hana...svo margt gerst...gott og slæmt eins og gengur og gerist.

Var einmitt að hugsa um það í dag (men hvað ég hugsa mikið...gerist þegar ég er ein í bílnum að keyra) hvað fortíðin hefur markandi áhrif á mann....bæði neikvætt og jákvætt...sem betur fer meira jákvætt en því miður er þetta neikvæða oft sterkara....sennilega vegna þess að það er eitthvað sem maður þarf að ,,díla” við...vinna sig út úr....hugsaði einmitt um það hvað annað fólk getur gert manni lífið leitt oft á tíðum...eitthvað sem einhver gerir manni eða segir við mann...kannski er ég bara svona lítil og viðkvæm...já ég er það...en sumt fólk gerir manni bara eitthvað ljótt og vont að ásettu ráði...afhverju? til að knésetja mann? Hvað græðir það á því? Veit ekki....en ég veit að ég er þannig að ég þarf alltaf að vinna mig í gegnum erfiðleika...annars hanga þeir bara á bakinu á mér og það er engri manneskju hollt.....æi ég er alltaf að pæla eitthvað....en ekki taka því þannig að ég sé endalaust að velta mér upp úr hlutunum...alls ekki...bara margt sem kemur upp í lífinu sem veldur því að fyrri reynsla...góð eða slæm...poppar þá upp...getur haft truflandi áhrif. Eníveis....ég er komin of langt í rausinu núna....

Annars langaði mig að tala aðeisn um dauðann....það tengist svolítið því sem ég var að tala um hér að ofan....verkefninu sem ég er að vinna að....en það tengist Húsavík (mínum fæðingarstað) og álveri....það skal tekið fram að ég er alfarið á móti álverum....punktur! Ég missti frænku um daginn...hún dó á besta aldri úr krabbameini...ég reyndar þekkti hana ekki mikið en hún var frænka mín...óskaplega falleg kona....í kjölfar þessara frétta fór ég að hugsa um dauðann....ég fer stundum í ruglið þegar ég hugsa um dauðann...en ég ætla ekki að fara út í þá sálma hér...það sem ég ætlaði að tala um var það að ég fór að hugsa um hvar ég mundi vilja láta jarða mig....hafa ekki allir einhvern tímann hugsað um það? kannski er ég skrítin en ég hef spáð áður í það og var að gera það í gær again....Ég er alveg með það á hreinu að ég vil ekki láta jarða mig á Húsavík...hef aldrei viljað það..hafði alltaf hugsað mér að láta jarða mig á Einarsstöðum í Reykjadal og helst af öllu bara láta búa til grafreit á Halldórsstöðum...sveitinni minni.....en núna hallast ég mest að því að láta jarðsetja mig í Mývatnssveit. Veit ekki afhverju þetta skiptir mig máli...hvar ég verð jörðuð...vonandi lifi ég lengi og verð gömul kona en Húsavík er bara allveg out...ekki þar...sérstaklega ef það kemur álver þar....ég vil aldrei aftur búa á Húsavík ef það kemur álver þar....mér finnst hanga dökkt ljótt ský yfir heimabæ mínum núna...mér finnst ekkert aðlaðandi við bæinn minn...ég held að hann verði ógeðslegur ef við tökum þátt í bullinu....svo margt annað sem hægt er að gera....fyrir utan það að þar er ekkert atvinnuleysi núna....við eigum að byggja upp ferðaþjónustuna og feta frekar inn á þá braut....Mér finnst því Mývatnssveit vera ,,heim” þess vegna langar mig að láta líkamsleifar mínar hvíla þar....umkringd fallegri náttúru og vatninu.....Þó að ég trúi því að andi manns svífi þangað sem maður vill fara þá skiptir mig máli hvar bodyið er grafið líka;) er þetta að fara fyrir brjóstið á ykkur? Hehe....svona er nú hausinn minn...hann var alveg fullur áðan...er að tæmast núna og þá get ég kannski farið að byrja á að elda matinn...hehe....æi...plæingar og aftur pælingar....þið eruð kannski löngu búin að gefast upp og farin að gera eitthvað annað...þið ykkar sem komust í gegnum þetta...til hamingju og takk fyrir að nenna að lesa bullið í mér;)....góðar stundir...ykkar Hilda


» 15 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 01:36:55 / sifu

I....i.....i love you!!!

Hahhaha...ég skal útskýra fyrirsögnina hér rétt á eftir...en ætli sé ekki best að byrja þaðan sem frá var horfið....

Bauð Hönnu vinkonu að koma og borða kjúklinginn með okkur...við skvísuðumst svo hér heima stelpurnar meðan Stefán fór að róta niðrá 11unni....tengdamamma græjaði voða fína lokka í hárið okkar Hönnu sem við síðan skunduðum út með í svalann kvöldstemmarann.....;)

Mættum niðrá bar rétt fyrir miðnætti ásamt Írisi hans Kela gítarleikara....Endless dark var að spila þegar við mættum og voru þeir bara þrusu fínir....Tingtak tók svo við og tóks vel hjá þeim...góður stemmari og fullt af fólki....og þá kemur að fyrirsögninni..hehe

Ég sem sagt sat við borð ásamt nokkrum vinnufélugum Stefáns og Hönnu vinkonu...fullt af fólki stóð fyrir aftan...svo gerist það að ég fæ hendi í andlitið...ég lít við og þá er þetta hendi á enhverjum útlendingi sem segir sorry sorry aftur og aftur....ég náttúrulega bara: ekkert mál vinur og brosi....hann sá sig svo knúinn til að koma að minnsta kosti 2-3 í viðbót eftir þetta og biðjast afsökunar....jújú...honum var auðvitað fyrirgefið...jæja...svo eftir tónleikana ákveðum við Hanna að rölta niðrá Thorvaldsen...svona á meðan strákarnir rótuðu niður....vill þá ekki svo skemmtilega til að ég hreinlega dett út um dyrnar á 11unni og beint á útlendinginn títt umrædda....ég auðvitað baðst afsökunar og hann bara: hey....i remember you...(við skulum hafa það á hreinu að hann talaði afskaplega lélega ensku....sem varð þess valdandi að ég fór ósjálfrátt að tala ensku eins og barn...þið skiljið) eníveis....áfram....i remember you....i´m a foreigner....you icelandic? Ég bara já....hann: you think i´m polish yes? Ég: no...i don´t think so....hann: i´m slovakian....ég: ok yes....you having fun in Iceland? Hann: no i don´t drink for 2 weeks (var samt með bjór og auljóslega örlítið drukkinn) ég: ok....i see....(ég geri mig svo líklega til að kveðja og fara) er sem sagt að labba í burtu þegar hann segir: you very nice.....i like you....i....i....i love you (með útbaðaða handleggina og stjörnur í augunum) ég: ok...og brosi og labbaði svo áfram niður Laugarveginn....HAHAHAHAHA.....hvað á maður að segja við svona...jæja...áfram með söguna...við Hanna löbbum svo niðrá Thorvaldsen þar sem ég stekk inn á klósett enda alveg í spreng...Hanna er svo hálf vandræðaleg þegar ég kem til baka ....fyrir framan hana stendur eldri maður hugfullur....ég spyr Hönnu hvort þetta sé einhver sem hún þekki og nei það var ekki svo....kallinn fer þá að tosa í mig og í trefilinn minn og segist bara vera gamall kall sem finnist gaman að horfa á fallegar ungar stúlkur....jess nice FÖRUM.....það var ekki alveg svo auðvelt þar sem hann sleppti mér ekki...ég náði þó að lokum að berja kallinn af mér og stökkva út....Djöfulli sem ég þoli ekki svona menn...alltof oft sem ég lendi í einhverjum leiðinda fullum ógeðis köllum....og ég sem get hreinlega ekki verið dónaleg...afhverju get ég ekki bara sagt eitthvað ljótt eins og drullaðu þér í burtu viðbjóður og láttu mig í friði? Nei ég þarf alltaf að segja viltu sleppa mér og reyna á góðann máta að losna....MEN....eníveis....við sluppum frá honum og þar sem það var geðveikt löng röð inn á Apótekið þá dró ég Hönnu með mér á Kofann....þar er alltaf gott að vera og stemmnings tónlist....og eins og ég vissi þá var hægt að fá sæti þar og ekki verra að Silla vinkona frá Húsavík var þar heldur batur óvænt;) gleði....alltaf gaman að hitta Silluna mína! Jæja...Stefán og strákarnir komu svo og áður en við vissum af vorum við farin að syngja og dansa eins og brjálæðingar.....mega gaman....vantaði bara Þuríði mína...Þuríður plús Kofinn jafnt og eitthvað sem bara á að vera;) hehe....Jess...ég segi svo Stefáni frá útlendingnum og ástarjátningunni....og við hlægjum af því....síðan tvístraðist hópurinn og við fylgdum Hönnu upp á Celtic cross...kíktum aðeins þar inn og svo skunduðum við hjúin á 11una aðeins...ætluðum að ath með nokkra Mývetninga....sem við hittum ekki en við hins vegar hittum útlendinginn minn,....hehe....hann varð heldur betur glaður þegar hann sá mig....fór á hnéin og byrjaði að tilbiðja mig...hélt í hendina á mér og kyssti og kyssti hana....sér svo allt í einu Stefán við hliðina á mér og sér líka að hann heldur í hendina mína.....Oh...sorry sorry....i did not know...belive you me? Faðmaði okkur og flýtti sér svo burt eftir að Stefán var búinn að sannfæra hann um að honum væri fyrirgefið og allt væri í góðu...hehe...æi litla greyjið....þetta er nú allt svona magnað....skemmtilegar dæmisögur helgarinnarJ

Jæja....en það var nú gott að koma heim um nóttina ...tengdó enn vakandi og ég segji ,,halló” þegar ég kem inn....hún setur fingurinn fyrir munninn og bendir inní herbergi...heyrist þá ekki með ofur krúttlegri röddu ,,halló”.....hehe...þá var það litla skottan okkar...vakandi í mömmu og pabba rúmi...hafði vaknað til að kúka...how krúttlegt er það....;) hún var því ekki alveg á því að sofna strax okkur foreldrunum til mikillar armæðu....dagurinn í dag fór því mest í leti...hanga í sófanum eða rúminu og dorma....henda sér svo í sturtu og gera sig sæta til að fara út að borða....Steina amma Stefáns...Siggi bróðir Eddu og konan hans Linda og við hér heima hittumst á Ítalíu og borðuðum saman....voða næs allt saman...fínn matur...fokkings dýr en notalegt og gott samt....

Jess...svona var þá helgin mín....lítið um lærdóm en ég tek á því í vikunni....það verður bara að vera svoleiðis....ætla núna að kúra mig...eitthvað endalaust þreytt og syfjuð þessa dagana.....æi...já....heyrumst....komið rosa gott hjá mér...mikið mikið....góða nótt...Hi
p.s. fullt af nýjum myndum á barnalandi;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 18:37:48 / sifu

Laugardagur

Jess....wonderful veður...góður laugardagur er í gangiJ

Vöknuðum snemma í morgun...stelpurnar fóru fram að horfa á barnaefnið meðan við hjónin hjúfruðum okkur upp að hvort öðru um stund;) Eftir morgun mat og sturtu fór Stefán með stelpurnar í göngutúr niðrað tjörn og í kolaportið....ég aftur á móti lagðist í smá verkefnavinnu og er að verða búin með verkefnið sem ég ætlaði mér að klára núna um helgina...það lítur allt vel út!

Við Emelíana fórum svo í Kringluna í bíó...sáum 3víddar myndina um Hönnu Montana...eða Miley Cyrus...það var rosa gaman...okkur finnst hún svaka flott stelpa! Eftir myndina...og helling af nammi ...þá röltum við aðeins í búðir...keyptum buxur og bol og eyrnalokka handa Emelíönu en ég keypti mér eina skó í Kaupfélaginu;)....much needed skó sko...!

Nú svo erum við bara að chilla hér heima...kjúklingurinn kominn í ofninn...edik lykt í loftinu því ég var að hreinsa örbylgjuofninn...hann var orðin hrottalegur...úff....

Plan kvöldsins er svo að fara á tónleikana með Thingtaki á 11unni....veit ekki framhaldið af því...ætli við kíkjum ekki eitthvað eftir þá...kemur bara í ljós.

Fórum í matarboð í gærkvöldi til Dísu frænku Stefáns....ummmm slef....það var svo góður matur...grillað læri og með því...ekki var eftirrétturinn síðri en það var ís og heit eplakaka....shit ég var svo södd...enda lagðist ég upp í rúm með stelpunum mínum þegar við komum heim og ég steinsofnaði....Stefán færði okkur svo allar til þegar hann skreið upp í eftir að hann hafði smellt af nokkrum myndum á símann sinn...hehe...Júlían í miðjunni með lappirnar ofan á andlitinu á Emelíönu...smart...og aðra hendina ofan á mér...ekkert mál greinilega að sofa svona...allt svo með einhvern ofan á sér;)

Já og í gær keyrði ég tengdamömmu niðrá Laugarveg...kíkti í nokkrar búðir með henni og fór svo heim...langaði svakalega mikið til að vera lengur enda finnst mér alltaf svo gaman niðrí miðbæ...einhver svona stemmari/andi sem svífur yfir...finnst voða gaman að rölta þar og kíkja á kaffihús og horfa á mannlífið.

Jess....ætla að lesa smá í bókunum mínum...mér finnst ég ekki mega láta neinn tíma fara til spillis þessa dagana...verð að skipuleggja hverja mín....nóg að gera...og mig er farið að hlakka svooooo til að klára skólann...finnst alveg vera farið að verða komið nóg...vá skildu þið þetta? Jess....skrifa vonandi eitthvað gáfulegt fljótlega...lofa engu..er svo bissí...en já...þangað til...hafið það gott og fáið ykkur piparmintubrauð frá Freyju....það er svoooooo gott..ummm...er húkkt á því núna...prufiði;) okey bæ


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 17:10:54 / sifu

Að enda mál....

Jæja...fjúff...búin! Var sem sagt að ganga frá skráningu í kúrsa næsta misseris....done with that sko...Valdi mér agalega spennandi fög....mestu skyldufögin er ég að klára núna á 1 ári og svo er voða lítið um skyldufög næstu 2 árin...meira val....sem er fínt sko.....en bara svona lesendum mínum til glöggvunar þá ætla ég að leyfa ykkur að fá smá nasaþef af þeim kúrsum sem ég er í núna og hvað ég valdi fyrir næstu 2 annir....þetta er nú svo agalega æsandi sko;) þá fáiði einhverja hugmynd um það hvað ég er eiginlega að gera þarna í HÍ.....ok....s.l. haust var ég í eftirfarandi fögum:

Vinnulag í mann- og þjóðfræði 10e

Sagnir, ævintýri og sagnamenn;þjóðsagnafræði 10e

Inngangur í þjóðfræði 10e

Núna er ég að klára eftirfarandi fög:

Norræn trú 10e

Efnismenning, hlutirnir, heimilið og líkaminn

Lúsakambar, hlandkoppar og kynlíf;þjóðhættir og daglegtlíf í sveitasamfélaginu

 

Næsta haust ætla ég svo að taka;

Íslenskar kvikmyndir; ímynd og sjálfsmynd þjóðarinnar 10e

Hátíðir, leikir og skemmtanir á Íslandi 10e

Inngang í fornleifafræði 10e (skylda að taka eitthvað inngangsfag í skyldum greinum)

Rannsóknar-eða námskeiðisritgerð 4e (skylda einhversstaðar á 2 eða 3 ári og ég ætla að vera vel skipulögð og klára hana snemma á ferlinum)

 

Jáh...þar hafiði það....spennandi ekki satt? ;) ég er mjög ánægð með þetta val hjá mér....hlakka til næsta veturs...ný og spennandi fög;) og nú er bara að klára prófin á þessari önn og standast þauJ

 

Eníveis....fór í atvinnuviðtalið áðan....og það er skemmst frá því að segja að ég er komin með vinnu í sumarJ jeyjjj..... og þá get ég kannski sagt ykkur loksins frá því hvaða vinnu um ræðir....Sjóminjasafnið í Reykjavík! Vinna frá 11 til 17 og aðra hverja helgi í Júní....síðan verður bara séð til með einhverja aukavinnu í Júlí og ágúst ef það hentar mér og þeim....verð náttúrulega að vera í fríi þegar Júlía Brá fer í sumarfrí 14 júlí....svo þetta hentar allt voða vel...átti ekki von á að einhver mundi vilja ráða mig í einn mánuð en þetta er allt gott og blessað baraJ Allt virðist vera að ganga upp....Júlía búin að fá flutning á Mánagarð og búið að ganga frá því að hún byrjar þar strax eftir sumarfríið hennar á Sólgarði....gæti ekki verið betra fyrirkomulag.

Ég virðist ætla að halda mig innan sjómanna og safna geirans...leiðsögn á vel við mig...og þessi vinna nýtist mér vel við námið....tengist því....

Oh...svo gott þegar eitthvað gengur mér í hag...best að reyna að njóta þess meðan það varir....sem lengst vonandi! Annars var ég einmitt að hugsa um það að ég er með svolitla áráttu í að klára mál og hluti....fer voðalega í taugarnar á mér þegar eitthvað hangir á bakinu á mér...finnst ég svo oft þurfa að setja einhvern endapunkt á ýmislegt....en því miður er það ekki alltaf hægt....sumt er bara þess eðlis...það þarf bara að fá að feida út....þið skyljið vonandi hvað ég er að meina....nóg um það.

Jæja....fiskur í kvöld...fiskur í chili...ummmmm.....ætla að fara að byrja á undirbúning...og hella mér í það sem ég þarf að gera....nóg í dag...heyrumst krúttin mín....og verum glöð og góð við hvort annað;) Hilda


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 22:36:33 / sifu

Blah....held ég bara

Ohhhh er með þreytu hausverk...sem þýðir að ég á að fara að sofa...en ég nenni ekki alveg strax...ætla að poppa og kúra með kærastanum upp í sófa.

Ég er kominn með gamla bakgrunninn minn aftur, sem ég byrjaði upphaflega með fyrir mörgum árum síðan...skipti og prufaði ég veit ekki hve marga í gær...finnst allir hér á blogg central leiðinlegir...hann var reyndar ágætur þessi sem ég var með á undan...þá var líka allt svo hreint eitthvað...finnst þetta svo skítugt allt....eníveis...ætla að þróa þetta eitthvað næstu dagana...á ábyggilega eftir að breyta 10 sinnum í viðbót...

Róaðist enn meir í dag þegar ég talaði við kennara minn um ritgerðina...var eitthvað að flækja þetta allt í hausnum mínum en svo spurði ég hann og svarið var einfalt....og ég bara...ok....bara það....?? og hann bara ...já! Frábært....

Skutlaði svo tengdamömmu í Smáralind eftir hádegið...kíkti með henni í 3 búðir....MEN hvað mig langar í skó....og föt...bara svona allskonar smá...smá þetta og smá hitt...vantar svo geðveikt mikið skó...helst 3 pör...vantar líka boli og hlýraboli og allskonar...peysur og fullt.....kjóla...mig vantar alltaf kjóla....er komin með nett leið á kjólunum mínum sem hanga inn í skáp...held maður ætti að skipta við vinkonur sínar reglulega um kjóla...fá þá sem þær eru komnar með leið á og lána sína í staðinn....held það virki!

Hummm.....Stefán var heima í dag....það var gottJ

Júlían búin að fá flutning á Mánagarð.....einu vandamálinu færra að hugsa um.

Panntaði fimleikabúning fyrir Emelíönu í gær....rosa flottur svartur með silfur fiðrildi á.

Mamma hringdi....ég elska mömmu!

Fékk póst frá vinnunni sem ég sótti um....þau vilja hitta mig á morgun;).....hvað ætli það þýði?....

Matarboð á föstudagskvöldið.....tónleikar á laugardagskvöldið.....hlakka til.

Allt í stikkorðum núna....hvað er það?

Kjöt og karrý eldaði ég í dag....ummmm.....

Hef ekkert að segja....eða ....man það ekki....þreytt....ætla að fara í sturtu og poppast svo....

Sofa...

Góða nótt....luv Hilda


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 00:49:50 / sifu

Geysp

Ákvað að blogga aðeins fyrir nóttina....þarf að hreinsa hausinn svo ég sofni betur...eða eitthvað þannig...ekkert sérstakt bara svona skrifa út af því að ég er búin að eyða kvöldinu í að hlusta á upptökur af Uglunni af tímum sem ég hef undanfarið misst af vegna veikinda og anna heima við.

Tengdamamma er hjá okkur....hún er alveg að redda hlutunum...gott að hafa hana...mér gafst því tækifæri til að sinna eridum í dag sem hafa setið á hakanum s.s. sækja dót og fara á Bókhlöðuna og ná mér í heimildir fyrir ritgerðina. Náði líka tökum á valkvíðanum....hann er ekki lengur til staðar...fór á fund í dag með kennurum þar sem kynntir voru kúrsar næsta misseris....búin að velja mér....flest allt áhugaverð fög...eitt sem ég skil ekki en það er að við verðum að velja okkur einn áfanga úr systurfögum....verðum að taka inngangskúrs í einhverjum fögum innan félagsvísindadeildarinnar....ég gæti svo sem fengið ferðamálakúrs metinn en ég nenni ekki að standa í því og ætla því að velja mér inngangskúrs í fornleifafræði....hef alltaf haft áhuga á henni frá því að ég var lítil...langaði einu sinni til að verða fornleifafræðingur svo þetta hentar vel...áhuginn er allavegna til staðar....sem er betra.

Eldaði slátur í dag....ég held að ég geri besta jafning í heimi...hann heppnast alltaf svo geðveikt vel hjá mér og er mega bragðgóður;) hehe....smá mont!

Stefán er í stúdíói núna...svo verða þeir með tónleika á 11unni á laugardagskvöldið....hlakka til að fara og hlusta á þá....mér finnst Thingtak vera skemmtileg og góð hljómsveit....fyrirutan það hve ógeðslega töff og kúl kærastinn minn er þegar hann spilar á bassann;) mér finnst gaman að horfa á hannJ Hvet ykkur til að mæta....svo get ég sagt ykkur það að það er stórt plan í gangi fyrir sumarið sem vert er að hlakka til....það verður allavegna gott stuð á ákveðnum stað í Mývatnssveit í sumar á ákveðnum tíma....auglýst síðar;)

Fékk tölvupóst í dag ásamt öllum öðrum íbúum Eggertsgötu 10....þar sem var verið að kvarta yfir 3-4 strákum sem hafa vanið komur sínar hingað undanfarnar vikur að leika sér á göngunum....verið að benda fólki á það að hleypa engum óviðkomandi inn í blokkina...hehe...ef þau bara vissu afhverju þessir strákar eru að koma hingað....iss...bara skólafélagar Emelíönu sem eru skotnir í henni...hehe....þeir hafa stoppað mig og spurt hvort ég sé mamma Emelíönu....gáfu tengdamömmu ritzkex um daginn og stoppuðu svo Stefán í fyrradag og spurðu hann hvort hann væri pabbi Emelíönu....hann spjallaði heillengi við þá...svaraði spurningum á borð við hvort hann væri skemmtilegur pabbi o.fl....MEN....æi mér finnst þetta bara krúttlegt....svo koma mömmur þeirra hingað og hringja bjöllunni í leit að drengjunum....

Ég er öll að hressast meir og meir...eina sem er að er það að ég er rosalega lystarlaus....og er ég farin að finna fyrir því aðallega á fötunum mínum...buxurnar poka utan á mér og þarf ég að tosa þær upp um mig....en lystin hlýtur að koma...vonandi með þrekinu líka...er svakalega þreytt og þreklaus eftir þessi veikindi.

Ég hugsaði í fyrsta skipti í dag: Vorið er að koma! En svo heyrði ég spána og þá ákvað ég að ég skyldi ekki segja þetta alveg strax....en ég finn að það er stutt í það....var æðislegt veður hér í morgun....

Mér finnst pínu skrýtið að vera ekki fyrir norðan í sumar...ekki það að mér finnist eitthvað mikið verra að þurfa að vera hér í borginni...tilhugsunin er bara skrýtin...Ég er ekki vissum að ég vilji vera nein staðar annarsstaðar en hér....ég þarf á borgarlífinu að halda...eða þannig sko....æi kannski vil ég bara vera heima hjá mér...finnst það best...nenni ekki að búa í ferðatösku lengur....mér skyldst líka að það verði ,,enginn” í sveitinni í sumar....allavegna fullt af fólki á okkar aldri sem hefur verið þar undanfarin sumur en verða ekki í sumar....ætli það verði ekki bara unglingarnir þá sem verða þar....við unga og skemmtilega fólkið verðum hér;) hehe....Nei annars er náttúrulega planið að vera megnið af sumarfríinu okkar fyrir norðan....og skreppa svo í kringum 17 júní og Jónsmessu auðvitað...hin árlega keppni í fótbolta milli stráka og stelpna verður um miðjan júní og auðvitað er mín í liðinu sem kemur til með að rústa strákunum....erum með kúl áætlun í gangi....say no more;)

Já maður verður að leyfa sér að dreyma og hlakka til sumarsins því framundan er loka törnin í skólanum og prófin....mikið verð ég glöð þegar það klárast....aahhh....

Jæja...nóg komið af rausi....ég gleymdi því sem ég ætlaði að skrifa um...dettur alltaf eitthvað svo sniðugt í hug að fjalla um en gleymi því svo alltaf....hausinn er einfaldlega of fullur af dóti.....það gerist...jæja...sturta og rúm....góða nótt lömbin mín....Hi


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 16:04:12 / sifu

Valkvíði?

Ég er að spekúlera í því hvortég sé haldin valkvíða....bara sko núna í dag...akkúrat á þessarri mín....Málið er að nú stendur yfir árleg skráning stúdent við HÍ í fög næstu missera og ég er í ruglinu...ekki að geta valið....MEN...!

Annars er mér illt í vintri hælnum....bara svona ef þið hefðu áhuga á að vitað það...langar agalega til að prufa að fara í fótsnyrtingu...

Kom seint heim í nótt...eiginlega of seint...og var því þreytt í morgun auðvitað...Fór í stelpu-hitting-Mývó.....vorum að funda;)....svo sátum við og kjöftuðum um allt mögulegt og ómögulegt nokkrar okkar fram yfir eitt í nótt...það er svo merkilegt hvað margt kemur upp úr dúrnum þegar menn fara að tala....og þar sem ég er náttúrulega ekki borin og barnfæddur Mývetningur og hef ekki alið manninn frá barnæsku þar...þá veit ég ekki FULLT af ,,slúddum” og öðru ,,fréttmeti”....alltaf er maður að læra á lífsleiðinni...og stundum er nauðsynlegt að læra af sögum um annað fólk...þá kannski skilur maður betur aðstæður fólks og ýmislegt....eins og ég vissulega gerði í gær...ekki það að ég komi eitthvað enn betur fram við viðkomandi manneskjur...ég kem fram við alla sem ég þekki semi mikið eins...og eins og ég sagði í gær að ef ég ætlaði að láta allar sögur um fólk í sveitinni hafa áhrif á mig og hvort ég tali við það eða kynnist því þá gæti ég alveg eins sleppt því að tala við alla þar....ég leyfi fólki að sanna sjálft sig fyrir mér...dæmi það að eigin reynslu...ekki af því hvað einhverjir aðrir segja....það er bara heimskulegt!

En já...rosa gaman að komast líka aðeins út í gær...fór líka í fermingarveislu til frænda míns sem hélt sína veislu niðri við Tjörnina....í safnaðarheimili Dómkirkjunar....æðislegt hús....æðislegar veitingar og gaman að hitta ættingja....krakkarnir voru mest úti að gefa öndunum brauð....dásamlegt!

Já og ég er öll að hressast....óttalega þreklaus samt en ég vinn það upp....

Oh það er svo gaman að hlusta á Júlíu tala núna....verið velkomin að koma í heimsókn og hlusta á hana...bara fyndiðJ hún var núna að segja mér að flugvélin væri í rassinum á henni...hahahaha.....og svo sagði hún neeiiiiiii.....

Bestu stelpurnar mínar!!!

Mig langar í bakarí.....ætla að fara í bakarí núna....ég skrifa bara seinna...ok....já og hey...þið afsakið okkur Þuríði í kommentunum þarna fyrir neðan um daginn...hehe....við erum náttúrulega snar geðveikar og elskum það!

Oki.....ég kem með eitthvað gott síðar.....ciao Hi


» 13 hafa sagt sína skoðun

29.03.2008 14:54:31 / sifu

bla bla bla....

 

Oh well.....sama fína gluggaveðrið úti....og ég inni....Stefán úti á rúntinum með stelpurnar og tengdó í heimsókn....ég ein heima að reyna að gera verkefni....verð bara hreinlega að klára það því ekki hefur nú verið neinn lærdómurinn s.l. 2 vikur....og stressið farið að segja til sín....hver heldur að maður hafi tíma til að verða lasin þegar maður er mamma og þar að auki í háskólanámi sem krefst þess að maður haldi dampi ....má lítið út af bera og þá er allt komið í rassgat....MEN...

Jæja...held mér sé að batna pínu...enn smá hósti sem er mest í barkanum og það er ógeðslega vont að hósta þegar manni er íllt í barkanum....ojjjj.....nefið á mér er eins og þurrkaður fiskur....og já ég hefði náttúrulega getað sagt ykkur síðast að ég væri ofan á allt hitt líka með ógeðis hvíta stóra munnangursbólu undir tungunni...ojjjj....bara til að bæta gráu ofan á svart....en mér líður samt ögn skárr...ekki eins vont í mér hljóð og í gær...þið sem heyrðuð í mér þá...

Eníveis...þið ættuð að heyra í Júlíu núna...röddin í henni er búin að breytast ekkert smá mikið....fyndið....miklu bjartari og skærari einhvern veginn....krúttleg samt...hún talar líka miklu meira núna...eins og allt sé henni auðveldara....borðar eins og hestur....sem er bara gott.

Æi ég hef ekkert að segja....langar óskaplega mikið út....glatað að þurfa að hanga svona inni heila viku....verð samt að passa mig...ætla ekki að láta mér slá niður...segir maður það? æi what the fuck....ég segji það bara....

Langaði bara að skrifa eitthvað....

Eitt sem ég var að hugsa um um daginn....það er nefninlega þannig á barnalandssíðunni minni að maður getur séð hvaða staðir / lönd komi í heimsókn á síðuna hjá okkur...ég kíki annað slagið á þetta....oftast eru það sömu staðirnir og löndin en svo detta inn önnur lönd stundum.....sá í vikunni nýjan stað sem ég hafði aldrei séð koma heimsókn frá áður....og ég hreinlega get ekki ímyndað mér að neinn sem þekkir okkur búi þarna....hlýtur bara að vera ferðamaður....hver veit? Allavegna....ég verð stundum voða forvitin....og þar sem ég er nýbúin að skipta um lykilorð þá veit ég alveg hverjir eiga að vera með það....og ég vona svo sannarlega að það fólk haldi því fyrir sig og láti ekki aðra þá það....en örfáir einstaklingar sem eru með það veit ég hreinlega ekki hvort sé hægt að treysta...þó svo að þeir segist lofa og allt það....æi skiljiði....?....allavegna er ekkert af þeim sem vita lykilorðið sem ég veit um ...það hefur ekki verið á ferðalagi á þessum tiltekna stað sem ég hjó eftir....Nenni bara ekki að standa í því að þurfa að vera með leiðindi og skipta aftur um lykilorð....ennn....já...annars erum við að spá í að taka smá pásu með barnalandssíðuna í lok Maí...þá rennur út áskriftin og kannski ágætt að pása bara....kannski bara þangað til næsta barn kemur;) hvenær sem það verður!

Jæja...það er tilgangslaust að skrifa bara ekki um neitt...ætla að henda mér í verkefnavinnu....láta svo strákinn minn rúnta með mig niður Laugaveginn aðeins á eftir...svo ég sjái smá mannlíf...er að grotna hérna inni...andleysið eftir því...ekki gott því ég á að skrifa mjög skemmtilega...grípandi og áhugaverða grein....úff...verð bara að setja upp grímuna og feika áhuga og gleði....glatað....ennn....jess...bæ...ég er búin...takk Hi


» 16 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 14:12:44 / sifu

vælu-rugl-blogg

Ég er að mygla...langar svoooo út...það er samt bara svona gluggaveður...sól en skítkalt og pínu hvasst....

Júlían var að sofna...henni líður bara vel eftir aðgerðina...ótrúlega brött sú litla...samt svona pínu pirruð og skapvond sem er mjög ólíkt henni alla jafna...en ég skil hana vel...

Ég er veikari en andskotinn...hef bara ekki orðið svona lasin í mörg ár held ég....var með óráði í fyrri nótt...umlaði og ég veit ekki hvað....held að Stefán hafi verið orðinn frekar pirraður á mér því ég var alltaf að spurja hvað klukkan væri.....díses...ég var í ruglinu...eina stundina skítkalt og þá næstu alveg að kafna úr hita...en ef ég tók af mér sængina þá varð mér strax aftur kalt....kannisti við þetta? Svitna meira en djöfullinn....jæja...hóstinn er samt að skána...Hanna vinkona var svo góð að koma með Fjallagrasa mixtúru handa mér sem svín virkar....kvefið kemst varla fyrir í nefinu mínu enda lekur stanslaust....og ofan á þetta allt saman er ég líka á túr....MEN....það sem er á mann lagt;) svo vaknaði um 6 í morgun og fór á klósettið...varð þá svona flökurt á að standa...kúgaðist og hélt ég væri að fá ælupest ofan í allt....en það var nú ekki....sem betur fer...Stefán var svo hérna heima í morgun til að hugsa um stelpurnar sína...en fór í vinnuna áðan....ég dópa mig bara vel af verkjalyfjum...þá einhvern veginn gengur þetta

Hringdi í mömmu í morgun...bara svona til að væla...merkilegt hvað maður þarf alltaf mikið á mömmu sinni að halda í veikindum....mömmur eru alltaf bestar....þær vita alltaf hvað á að gera og hugsa svo vel um mann....ekki það að Stefán minn sér vel um mig...breiðir yfir mig teppi og sæng...býr til böggul og sækir vatn og töflur og allt sem ég bið um....það vantar ekki...en það er ansi erfitt að vera heima með litið barn sem er sjálft dópað á 4 ´tima fresti og vera sjálfur hundlasinn....maður vill einhvern veginn ekki þurfa að hugsa um neitt....æi ég ætla að hætta að væla um þetta....komið nóg af veikinda tali.

Annars er tengdamamma og Emelíana að koma með flugi í kvöld...tengdó ætlar að vera hjá okkur í viku allavegna....hjálpa til með að passa Júlíu svo við komumst í vinnu og skóla....því Júlía má ekki fara á leikskólann í 2 vikur....

Æi ég ætla að vona að ég verði orðin frísk um helgina...svo margt sem ég þarf að gera...og margt sem mig langar til að gera....t.d. búið að bjóða mér í bíó á föstudagskvöld...laugardaginn langar mig í heimsókn og á sunnudagskvöldið ætlum við nokkrar stelpur úr Mývatnssveit að hittast....má ekki missa af því...

Var að hlusta á Maus um daginn....Maus er ein af mínum uppáhalds íslensku böndum...og mér finnast textarnir hans Bigga geðveikt flottir....hér kemur einn:

 

égímeilaðig
af plötunni lof mér að falla að þínu eyra.
 
ég vil aldrei, aldrei aftur heimsækja þig.
og ég vil aldrei aftur að þú heimsækir mig.
því nú loksins, loksins á ég vin sem skilur mig.
og ég vil aldrei, aldrei aftur snerta þig.

og ef þú vilt nálgast mig,
með eitthvað sem angrar þig,
sendu mér brostið hjarta í gegnum internetið.

og hver sem þú nú ert
þá erum við öll tengd hér sterkum tengslum,
og ég ímeila þig og ég segi þér allt,
sem ég vil án þess að svipur minn segi þér satt.

og vil aldrei, aldrei aftur yrða á þig.
og vil aldrei aftur að þú yrðir á mig.
ég vil aldrei aftur þurfa að horfa til þín.
og vil aldrei aftur að þú horfir til mín.

og ef þú villt nálgast mig,
með eitthvað sem angrar þig,
sendu mér brostið hjarta í gegnum internetið.

og hver sem þú nú ert
þá erum við öll tengd hér sterkum tengslum,
og ég ímeila þig og ég segi þér allt,
sem ég vil án þess að svipur minn segi þér satt.

og nú hef ég allt sem ég vil,
allar helstu þyrnirósir allsberar.
og nú geri ég allt sem ég vil,
ég horfi á uppskurð í beinni á meðan ég leik við mig.

og hver sem þú nú ert
þá erum við öll tengd hér sterkum tengslum,
og ég ímeila þig og ég segi þér allt,
sem ég vil án þess að svipur minn segi þér satt.

 

 

Þessi texti segir ótrúlega margt…..ég ætla svo sem ekkert að fara að útlista það hér hvað mér finnst hann segja en hann fékk mig til að hugsa betur um það hve mikið er hægt að bæði misskilja og mistúlka þegar maður er að tala við folk á msn eða lesa eitthvað á meili eða í smsi…..þar sem þú sérð ekki framan í viðkomandi….þess vegna á maður aldrei að ræða einhver alvarleg mál í gegnum tæknina….bara feis tú feis…..það finnst mér allavegna….ég hef brennt mig á þessu…en svo auðvitað er til folk sem hreinlega túlkar hlutina alltaf á sem dramatískastann hátt bara af því að það þrífst á því….æi fokk…..hausinn á mér funkerar ekki rétt núna….ég er alveg lost hérna….næ engri tengingu við heilabúið….best að hætta þessu og leggja sig…

Bara plingar sem sagt…góður texti…hendi kannski fleirum inn við tækifæri….sá það nefninlega að þessir textra (sumir allavegna) ná að túlka það sem ég er að hugsa oft á tíðum….stundum vildi ég óska þess að ég gæti sungið suma texta fyrir ákveðnar manneskjur til að tjá mig….ég ætti kannski bara að gera það….hey ég meina….ég get sungið….hehe….það væri fyndið….verið geðveikt rómó einn daginn og sungið I will always love you eða eitthvað ástardæmi fyrir Stefán….og svo einhvern brjálaðann texta eftir Fionu mina Apple….við einhvern sem ég er reið við eða eitthvað….haha….sé það alveg fyrir mig…..t.d.: How many times do I have to say To get away-get gone Flip your shit past another lasses Humble dwelling……ahahah…..MEN…..ok ég ætla að hætta að tala og bara syngja allt fyrir folk….HAHAHA….

Well….gott að ég get skemmt mér hér ein heima í svitabaði….kannski er ég bara í ruglinu? ….Hilda

p.s. verð bara að dáðst að henni Britney Spears…er að horfa á myndband með henni á skjá einum…mér finnst hún mega flott….miklu flottari en áður en hún varð mamma…hún er ekkert feit…bara komin með þessar kvenlegu-mömmulínur….;) ok bæ
þetta er nú meira ruglið.....æi já


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 65750